![]() |



Velkomin á heimasíðuna mína - vonandi hafið þið ánægju af heimsókninni!
Nei, ég er ekki íslenzkur. En eins og flestir Íslendingar vita er "Hálfdan" gamalt víkinganafn sem þýðir hálf-danskur og þar sem ég heiti Dan og forfeður mínir komu frá Schleswig-Holstein héraðinu, rétt við Danmörku, hentar nafnið mér vel!
![]()
Þegar ég var 20 ára tók ég saman lista yfir allt það sem ég ætlaði mér í lífinu, eins og að ferðast til allra heimsálfanna, fara til sjós, vinna í fjölleikahúsi, o.s.frv. Almennt má segja að ég hafi náð flestum markmiðunum á listanum, en ennþá eru nokkur atriði eftir og staðir sem ég á eftir að fara til. Ef þú vilt fylgjast með, settu bókamerki við þessa síðu og líttu við endrum og eins til að sjá hverju ég hef bætt við listann minn eða merkt við.
Strax sem strákur fetaði ég í fótspor afa míns
og allt frá því ég var í
háskóla hef ég haft ánægju af að troða upp sem trúður,
eldgleypir,
eldblásari
og
kylfukastari ("juggler"),
s.s. í
fjölleikahúsum, skrúðgöngum,
skemmtigörðum,
farþegaskipum, sjónvarpsþáttum og tónlistarmyndböndum.
Mér þykir gaman að kasta kylfum og
boltum ("juggle"), kenna öðrum þetta við Music City Jugglers Club hér í
Nashville á þriðjudagskvöldum og að sækja mót í þessari list hér í nágrenninu.
Smellið hér til að fara áfram í aðalheimasíðu "IJA Jugglers with Homepages". ![]()
Annað áhugamál mitt er að sækja miðalda/endurreisnar-hátíðir,
þ.á.m. "Medeltids
Veckan" í gamla víkingabænum Visby á eynni Gotlandi við Svíþjóð og víkingahátíðir í Hafnarfirði og Trelleborg, Svíþjóð. Ég er félagi í "French Lick Rifles" og stundum tek ég þátt í sýningum á "Mountain Man Longhunter Buckskinner Rendezvous"
hér í Tennessee með indíánöxina mína og antík-riffilinn.
Um árabil bjó ég einn á
"Little Stirrup Cay", sem er einangruð smáeyja,
aðeins um míla á lengd og þriðjungur mílu á breidd, í norðvesturhluta Berry-eyja (kort) í Bahama eyjaklasanum (kort). Þar bjó ég í pálmalaufakofa, matreiddi við eld, át kókoshnetur og annað sem til féll
og lifði þannig að hætti Róbinson Krúsó.
Oftast nær klæddist ég skýlu eins og Tarzan
og hárið upplitaðist og varð nær hvítt
í sólinni og söltum sjónum.
Fyrir nokkrum árum sneri ég aftur og sá um eyjamóttökur fyrir skipafélagið
"Eastern/Admiral Cruise Lines". Ég bjó á eynni og á skemmtiferðaskipinu "S.S. Emerald Seas" og þar sem ég kenndi köfun var ég jafnan kallaður
"Diver Dan".
Árið 1991 bjó ég í Stokkhólmi, Svíþjóð (kort) og starfaði að tónlistarmálum við
"Swedish Performing Rights Society", STIM. Eftirminnilegt frá þeirri dvöl
var þegar ég kleif hæsta fjall Svíþjóðar og sparkaði litla leðurboltanum mínum uppi á Kebnekaise tindi norðan heimskautsbaugs. Þar sem ég tala sænsku og þýzku, auk þess sem ég er að læra norsku, dönsku, íslenzku og fornnorsku, reyni ég að ferðast reglulega til Norðurlanda til þess að læra um víkingana og fornnorskar rúnir á
rúnasteinum. Ef þú hefur áhuga á rúnaleturssíðunni í Noregi, smelltu
hér.
Ég er líka félagi í "Sons of Norway" og sænska félaginu "Swedish Tre Kronor Klubb" sem starfrækt eru hér í Nashville. Ef þú býrð í Nashville eða nágrenni og hefur verið í Skandinavíu, Íslandi eða Evrópu, ertu meira en velkominn í Lúsíu-jólaboðið mitt í ár!
Undanfarin ár hef ég starfað að tónlistarmálum við
Performance Rights Licensing í Nashville, Tennessee, þar sem ég innheimti rétthafagjöld fyrir
tónlistarhöfunda og útgefendur og á minni könnu eru rétthafamál á mínu
svæði og einnig á Internetinu. (SESAC er hliðstætt við STEF á Ísland og STIM í
Svíþjóð). Ég starfræki líka útgáfufyrirtæki hér í Bandaríkjunum og í Svíþjóð og skrifa og framleiði tónlist og tónlistarmyndbönd eftir því sem ég hef tök á.
Ég er meðeigandi að veffyrirtækinu
Web Weavers International. ("Spindel" er sænska orðið yfir "könguló"). Ég er líka framkvæmdastjóri alþjóðlegra og Internets-markaðsmála hjá
. Við bíðum nú spennt eftir nýrri útgáfu með listamönnum á okkar
vegum, allt frá djasstónlist yfir í þjóðlagatónlist og nýbylgju. Við erum líka með
hljóðfæraskífu ("instrumental") með Pete Drake ásamt fyrrverandi Bítlum (George, Paul og Ringo), Bob Dylan, Peter Frampton, Billy Preston, Charlie McCoy og fleirum! HLUSTAÐU ef þú ert með hljóðkort!! Þessu máttu ekki missa af!!
Sumarið 1995 fór ég í spennandi ferðalag til Andes fjallanna og Amazon frumskóganna
í Ekvador. Þar fór ég um Quito, Otavalo og Baños og sneri aftur til Quito, Ekvador, yfir páskana 1996, þar sem ég kvæntist! Í brúðkaupsferðinni fórum við til Lima, Cuzco, Titicaca-vatns, og Machu Piccu í Perú. Í júní, sama ár, giftum við okkur aftur í Indíana, Bandaríkjunum, og fórum í aðra brúðkaupsferð til Svíþjóðar, Noregs, Þýzkalands, Danmerkur og Íslands! Því miður fór svo að eftir vikudvöl í Nashville varð hún ósátt og ákvað að halda sína leið... Síðastliðið sumar átti ég þess kost að fara aftur til Svíþjóðar, Danmerkur og Íslands og taka aftur þátt í víkingahátíðum og sýningum.
Í "frítíma" mínum brugga ég fornan víkingamjöð (Mead Resources), sker út
litað gler, stunda pílukast, fer í hellaleiðangra, sigli, renni mér á skíðum, kafa og
held páfagauka.
Bezti vinur minn er páfagaukurinn
Gandolfur, sem er "Macaw" af dvergakyni, með gulan háls. Hann er nýbúinn að læra að segja "Hello" og "Peekaboo" (gjugg í borg!!), alveg eins og hinn upphaflegi Gandolfur sem ég átti. Hann hefur vaxið vel og
dafnað og er nú orðinn tveggja og hálfs árs gamall!
Takk fyrir að líta við! Þú ert gestur númer . Ég vona að þú hafir haft ánægju af heimasíðunum mínum. Hér er síða með tengingum til annarra vina minna. Ef þú vilt bætast í hópinn, láttu mig vita. Ef þú ert í Powwow og vilt ræða málin, smelltu hér til að sjá hvort ég sé tengdur inn á Powwow sem halfdan@aol.com. Og ef við eigum
sameiginleg áhugamál, sendu mér tölvupóst!